Heitt kartöflusalat á Muurikka pönnu
Fyrir 4
8 st soðnar karftöflur, (líka tilvalið að nota afganga af bökuðum kartöflum t.d.)
2 sneiðar bacon
1 st laukur
16 sveppir meðalstórir
1 msk sinep má vera hvort sem er dijon eða sætt
2 msk matarolía
Smá skvetta hvítvínsedik
6-8 stk graslaukur fínt skorinn
Olía til steikingar
Undirbúningur
skerið kartöflurnar í hæfilega bita
Skerið baconið í litla strimla
Skerði laukinn í grófa bita
Skerði sveppina í 4 hluta
Hrærið saman sinep, olíu og edik í litla skál
Saxið graslaukinn
Aðferð
Setjið Bacon, lauk og sveppi á vel heita pönnu með lítilsháttar matarolíu og steikið í smástund, bætið kartöflunum út á pönnuna og þegar þetta er orðið vel heitt setið þá sinneps sósuna og graslaukinn yfir salatið og blandið þessu vel saman og færið það svo upp á fat.
Þetta saltat hentar vel með fiski og kjöti, eins má bæta við fleiri tegundum af grænmeti eftir smekk hvers og eins



