Steiktur steinbítur, marinerađur í Sweet Chili sósu međ kókosflögum og möndlum

08. desember 2011

 Uppskriftin er einföld og fljótleg, þetta er fyrir ca 4
150-200 gr af roðlausum og beinhreinsuðm steinbítsflökum pr mann
2 dl sweet chili sósa
Hálf Lime
Hálf Sítróna
ca 1 matskeið af kóksmjöli  (mér finnst best að nota stóru flögurnar frá Sollu)pr mann
ca 1 matskeið möndlufögur pr mann

 Aðferð

kreistið safann úr ávöxtunum og blandið saman við sweet chili sósuna og hrærið vel saman.
leggið fiskinn í sósuna og marinerið í ca 20 mín
Eftir að kveikt hefur verið undir pönnuni og hún er að hitna ristið kókosmjölið og möndlurnar á þurri pönnunni.  Gætið þess að vera ekki með of heita pönnu svo þetta brenni ekki. Fjarlægið þetta svo af pönnunni og stráið yfir fiskinn eftir að hann hefur verið steiktur og borinn fram á fati eða á disk hvers og eins
Stekið fiskinn og gætið þess að það er mikill sykur í sósunni sem brennur ef ekki er fylgst vel með
Berið þetta fram með hrisgrjónum, hrásallati og sweet chili sósu.
Þessa uppskrif fékk ég frá Soffíu Gústafsdóttur á Patreksfirði og var notuð á Skjaldborgarhátiðnni árið 2008 og sló í gegn

Til baka