Steinbítskinnar í Teriyaki sósu
Fyrir 4
Teriyaki sósa
Innihald
1 msk Engifer ferskt, og fínskorið eða niðurrifið
1 hvítlauksrif fínskorinn
1 bolli syoa sósa
1 msk shake ( má sleppa)
1 msk mirin (fæst í Nóatúni) (japanskur hrísgjróna lögur)
3 msk sykur
Nokkrir dropar af sesam olíu
Aðferð
Saxið engiferið og hvítlaukinn, setjið allt í lítinn pott og látið sjóða við vægan hita og hrætið í þar til sykurinn hefur blandast saman við löginn, kælið áður en fiskurinn eða kjötið er marinerað í þessu. Hæfilegur tími að mínu mati er ca 20 mín fyrir fisk og kjúkling, en 30-40 fyrir lamba, nauta og svínakjöt
180-200 gr á mann af Steinbítskinnum eða steinbítsflökum
1 laukur
¼ blaðlaukur
½ græn paprikka
½ rauð paprikka
Skerið grænmetið í hæfilega bita ekki of fínt
Eftir að fiskurinn hefur legið i sósunni í 20 mín setjið hann á heita Muurikka pönnuna og bætið grænmetinu úti og steikið í ca 4-5 mínutur , ræðst svolítð af stærð kinnanna eða þykktinni á fiskbitunum.
Gætið þess að ofsteikja ekki kinnarnar því þá verða þær seigar og stífar undir tönn
Gott er að laga þessa sósu í stærra magni og geyma hana í ísskáp, en þá er gott að sigta hvítlaukinn og engiferið frá því annars er hætt við því að það verði of mikið hvítlauksbragð af henni, ég hef geymt sósuna þannig í 4 vikur í ísskáp.



