Greiðslukerfið komið í lag
21.02.2012
Etthvert ólag var á greiðslukerfinu, en nú er búið að lagfæra það. Allar kortaupplýsingar eru geymdar hjá Kortaþjónustunni. Greiðslugáttinn er Kortaþjónustunni og verður það gert sýnilegt í þessari viku, þannig að þega vara hefur verið pöntuð færist viðskiptavinurinn inn á greiðslu gáttina og gegnur frá greiðslu þar og færist síðan aftur yfir á www.muurikka.is
Nýjar vörur væntanlegar í byrjun mars.
06.02.2012
Veið eigum von á nýjum vörum í lok mars, þar á meðal 3l gufusuðupott,
og valu pönnu, ásamt nýjum Muurikka vörum, setjum inn fréttir þegar nær dregur
Gleðilegt nýtt ár
31.12.2011
Óskum viðskiptavinum og velunnurum okkar gleðilegs árs og þökkum samskiptin á liðnum árum.
Gleðileg jól
24.12.2011
Við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum kærlega fyrir viðskiptin á árinu sem er að ljúka
Nú hefur þessi netverslun verið opnuð formlega
20.12.2011
Búið er að taka út greiðslukerfið og geta nú öll kortaviðskipti farið í gegnum greiðslukerfi Kortaþjónustunnar. Við geymum engar kortaupplýsingar og deilum ekki út neinum netföngum.
Við munum reyna að veita eins persónulega þjónustu og hægt er í gegnum netið.
Eitthvað af vörum hefur selst upp á meðan netverslunin var sett upp og er beðist velvirðingar á því. Jafnframt þökkum við þær frábæru viðtökur sem við höfum fengið á Opa pottum og pönnum og erum sannfærð um að þær uppfylla væntingar viðskipta vina okkar
Nýja síðan lokins komin á netið.
18.12.2011
Ekki er hægt að kaupa vörur enn sem komið er, þar sem verið er að taka út öryggismálin í verslunar og kortakerftinu. Því ætti að ljúka á næstu dögum. Opa og Muurikka vörur hafa verið til sölu á Jólamarkaði í verslunarmiðstöinni Neista á Ísafirði og hafa vægt til orða tekið fengið frábærar móttökur, Eitthvað er orðið uppselt og lítið eftir af öðru, en reynt verður að bæta úr því við fyrsta hentugleika. Hægt er að senda okkur tölvupóst og panta vörur af síðunni fram til hádegis þriðjudaginn 20.12.2011 sem ætti að vera öruggt að fengist afhent fyrir jól.
netfangið er steini@muurikka.is eða gsm 897 4573.
ps Eftir hádegi
20.12. verð ég kominn í jólafrí og því gæti verið erfitt að tryggja að vörur komist í póst eftir þann tíma
Ný heimasíða og netverslun
08.12.2011
Velkomin á nýja heimsíðu og netverslun Muurikka á Íslandi. Það hefur lengi staðið til að setja upp þessa netverslun og nú er komið að því.
Það var gert til að auvelda viðskiptin á netinu.





